Já
sælt veri fólkið. Ekki hefur lífið verið spennandi síðan við
komum heim frá Sunny California... Maður hefði kannski bara
ekki átt að koma heim? nei... þá hefði mamma fengið flog. Ég
nenni ekki að segja frá því sem við gerðum úti því þeir
sem hafa áhuga á að vita það eru búnir að spurja. Samt
sem áður á ég eftir að setja inn einhverjar myndir frá
förinni. Það kemur með betra interneti, en það er merkilega
að gerast í dag væntanlega. Hipp Hipp Húrra! þá loksins losna
ég við forn-netið sem er nota bene 50kb. merkilega ekki
neitt. það er ekki einu sinni hægt að nálgast svona hægt net
í dag. isss.
Svo er maður nú byrjaður í
Háskólanum... nottla búin í lágskólanum... hvað er með nafnið samt,
háskóli. Já og já. það er einhver kall með mér í þessu sem heldur
að hann sé fyndinn og er alltaf að grípa frammí fyrir öllum með
kommentum sem eru vægast sagt ööömurleg og ekki fyndinn. Greyið. Ég
sat við hliðina á honum (big mistake) og ég hélt að ég mundi bara
drepa manninnm hann er svo leiðinlegur.
já já. Í gær sá ég mynd um dani sem
hafa ákveðið að snúa til Íslams trúar einhverja hluta vegna.
Foreldrar þeirra oftar en ekki afneita þá börnum sínum. Ég ákvað þá
að spurja foreldraskrípin hvort þau myndu nokkuð afneita mér ef ég
snéri í átt til Mekka.
Pabbi sagði: "Nei, nei
það held ég nú að ég mundi ekki gera."
en mamma var ekki lengi að segja:
Guð já... á stundinni, engin spurning.
þá veit maður það...
mamma afsakaði sig eftir illt augnaráð
frá mér og pabba og sagði að höfuðklúturinn væri svo ósmekklegur og
kuflinn svo ansi ómeðfærilegur. AHA... Hún er sem sagt að segja að
ég sé asnaleg með höfuðklút.... En engar áhyggjur ég er ekki á leið
til múslimstrúar.
Ji ef maður bætir a-i í múslims þá
fær maður út músAlims. Músalimur.... ojojoj.
og svona fyrir þá sem eru í
viðreynslupakkanum þá er hér ein gullin lína fyrir þá sem vilja
líta út fyrir að vera gáfaðir og kunna latínu:
Ubi habitas, puella? - hvar býrðu
stúlka?
Ubi habitas, Puer? - hvar býrðu
drengur?